
Automatic Long line baiting machine
Beitningartrektin er framleidd úr ryðfríu stáli. Hún er tvöföld og yfirleitt staðsett aftan á bátnum. Beitunni er helt í sílóið og þar fara krókarnir í gegn og grípa hana á leiðinni út úr bátnum. Stífir burstar mynda skot á krókinn til að festa beituna betur á. Trektin beitir mjög vel td smokkfisk, síld, makríl og kúskel, en einnig beitist fersk loðna mjög vel. Sjálf línan fer aldrei í gegnum beituna, einungis krókarnir. Renna þeir í gegnum beituna og grípa bita um leið og línan rennur út.
Engin vélbúnaður er fyrir beitningartrektina, hún er einungis keyrð á hraða bátsins. Hún er mjög einföld í uppsetningu og notkun. Og hefur hún valdið byltingu í línuútgerð smábáta á undanförnum árum.
- Size:
- Lengd: 105 cm
- Breidd: 73 cm
- Þyngd: xxx
- Tvöföld þannig hægt er að hnýta saman línur
- 3 stærðir af stokkum; 70, 90 og 110 cm
- ca. 98% beitning á hálffrosnum smokkfisk
- Einungis krókarnir fara í gegnum beituna svo línan helst hrein


Visit Us
Jónsvör 3
190 Vogar
Opening hours
Mon - Fri: 8-17
Closed on Weekends
